Orðlaus yfir Bretum.

Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég er orðlaus yfir Bretum. Þessi snjór er náttúrulega alveg að fara með þá og allt bara í rugli. Flugvellir hafa verið lokaðir, lestarnar hættar að ganga sumstaðar, SKÓLAR LOKAÐIR og fótboltaleikjum frestað. Við erum að tala um að snjórinn hérna er í álíka miklu magni og í góðu fallegu vetrarveðri í mars eða apríl sem allir njóta þess að fara á skíði á Akureyri. Þeir segja að ástæðan fyrir því að skólarnir séu lokaðir er sú að það er erfitt fyrir fólk að koma sér í vinnuna þannig það vanti mannskap sem ég skil svosem EN það sem mér finnst toppa þessa ástæðu best er að ,,það er svo hættulegt að vera úti í svona veðri því það er svo hált og fólk getur dottið og slasað sig". Hélt ég yrði ekki eldri þegar ég heyrði þetta. ,,Í svona veðri" þetta er ekki einu sinni veður. Við erum að tala um smá snjókomu og meira að segja sól og logn bara spurning um að læra labba í hálku.  Mér finnst þetta til háborinnar skammar, að svona stórt land geti ekki haldið uppi sínum samgöngum þegar lítil þjóð eins og Ísland sér þetta varla sem vandamál og heldur nánast öllu sínu gangandi í þúsund sinnum verra veðri en þetta sem hefur verið hérna úti.  Svo annað, þeir notar regnhlífar í snjókomu. Hvað er það? Það má ekki rigna á þá og það má ekki heldur snjóa á þá? Þeir nota kreditkortin sín, plasthlífar og annað drasl til þess að skafa bílana sína, þeir eiga ekki skóflu þeir moka með sköfum svona eins og maður notar í sundlaugum til að koma vatninu niður í vatnsrenslin eða strá salti já semsagat MATARSALTI nánara tiltekið á gangstéttirnar til þess að snjórinn bráðni, þeir labba um eins og þeir hafi verið á viku fylleríi í þessari hálku......  Eins og ég sagði í byrjun bloggsins þá er ég hreint út sagt orðlaus og þykir Bretarnir vera miklir aumingjar. Ekki orð um það meir.

Okkur Íslendingunum finnst þessi snjór bara alls ekki leiðinlegur sko.

Þrátt fyrir þetta allt saman sé ég alls ekki eftir þessari ákvörðun minni með að skella mér út til Bretlands. Það er endalaust gaman að kynnast nýjum hefðum og kynnast nýrri menningu og ef ég hefði ekki gert þetta hefði ég ekki hugmynd um þessa skrýtnu lifnaðarhætti Breta. Það er heldur ekki alveg það léttasta í heiminum að búa inn á ókunnugri fjölskyldu sem er komin til að vera mitt nánasta fólk næsta árið og ég á að haga mér eins og heima hjá mér inni á þessu heimili næsta árið.  Ég er reyndar ótrúlega heppin með fjölskyldu sem er miklu meira en til í það að taka mig inn í fjölskylduna og mér hefur ALDREI liðið eins og ég sé BARA au-pair en ekki ein af fjölskyldunni. Ég hef heldur aldrei litið á fjölskyldu mína sem vinnuveitendur mína og ég geri margt á heimilinu sem stendur í ákveðnum au-pair reglum að sé bannað og það sé ekki í okkar verkahring. Á þessu heimili hjálpast allir að og allir vinna saman til að gera daginn auðveldari. Þetta er fjölskyldan mín númer tvö og mér finnst ekkert mikið öðruvísi að vera í kringum þau og mína alvöru. Ég hefði bara ekki getað verið heppnari. Þau vilja allt fyrir mig gera og það eru aldrei nein vandamál, ef það kemur upp eitthvað vandamál þá eru þau mál leyst samdægurs og gleymt og grafið daginn eftir.

Er komin með þessa hefbundnu rútínu í daglega lífið mitt hérna úti aftur sem er stórkostlegt. Joshua í sínum skóla alla daga vikunnar frá 9 til 3.15 á daginn.
Sofia í leikskólanum á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum frá 9 til 4.
Fimmtudagar eru ferðadagarnir okkar þá fer ég með krakkana í musik class, Sofia fer á morgnanna klukkan 11.30 og Joshua seinna um daginn eða  4:45.
Föstudagar eru dagar sem ég reyni að fara með Sofiu í playgroub hóp þannig hún getur leikið við aðra krakka eða bara dundað sér við að mála, föndra eða litla. Ég hef hinsvegar sínt meiri áhuga á því dunderíi en hún og finnst mér ekkert leiðinlegt að fara með henni þangað því mér finnst endalaust gaman að dunda mér við eitthvað svona. Svo reyni ég að breyta til annað slagið og fara með hana í Sobell Center sem er svona staður fyrir börn, þau geta klifrað, rennt sér niður rennibrautir í stútfullt rými af boltum og allskonar skemmtilegt.
Þá daga sem Sofia er í leikskólanum fer ég í ræktina á morgnanna, nema þá mánudaga sem ég er að þrífa þá sleppi ég þeim dögum því það tekur sinn tíma þrífa eins og flest allir ættu að kannast við og ákveðin líkamsrækt útaf fyrir sig líka.
Svo held ég að sjálfsögðu áfram í Íslenska kórnum í London og eru æfingar öll þriðjudagskvöld.
Ég hef svo einnig verið að reyna leita mér að ódýrum eða jafnvel fríum námskeiðum í enskuskóla, það virðist vera lítið um það, en ég reyni ennþá mitt besta að finna eitthvað gáfulegt til þess að efla kunnáttu mína enn betur.

Ég skellti mér á útsölurnar hérna í London síðustu helgi og ég varð fyrir smá vonbrigðum því allt sem ég keypti mér var ekki á útsölu og allt sem var á útsölu var allt geðveikt mikið drasl og ekkert spes. 70% afsláttur og sumar flíkurnar voru bara á 2-5 pund. Frekar svekkjandi, en mér tókst svosem að gera góð kaup og mér á ekki að vera kalt það sem eftir er af vetrinum í London sem er jú fyrir öllu. Nýjustu fréttirnar eru svo þær að gasið í London er að verða búið? Það yrði náttúrulega hræðilegt ef svo myndi gerast, ekki bara það að við getum ekki eldað og farið í heita sturtu heldur SHITT HVAÐ ÞAÐ VERÐUR KALT! Efast samt um að þeir muni láta þetta gerast. Hef alls ekki miklar áhyggjur af þessu allavega. Í þessari verslunarferð minni fór ég að velta því fyrir mér hinsvegar hvort áramótaheit Breta hafi verið að hætta vera svona kurteisir því þvílíkur ruddaskapur sem var í liðinu. Ekki nema þetta sé bara snjórinn sem er að pirra þá svona mikið þessa dagana. Það er svosem ekkert vitlaus hugmynd heldur.

 

Ég hef ákveðið að vera ekki hérna í 2 ár þrátt fyrir að mér hafi verið boðið það. Fékk minn umhusgunartíma og ég komst að niðustöðu. Það hefði verið gaman að vera hérna lengur en ég veit bara að ég á eftir að sjá eftir því í september að ég hafi tekið þessa ákvörðun og þá verður tímabilið fram á jólum mesta helvíti á jörðu. Þannig núna fer Ingibjörg í það að fara leita sér að au-pair og þetta er nákvæmlega sami tíminn og þegar hún byrjaði að leita í fyrra. Ég var til dæmis ráðin í febrúar þannig það verður spennandi að sjá hvaða stelpa á eftir að taka við af mér.  Þið megið búast við mér aftur á heimaslóðir í lok júlí, það er pottþétt að ég kem heim í kringum 20 og eitthvað júlí.

Í síðasta bloggi sagði ég ykkur frá afmælisgjöfinni minni frá fjölskyldu minni hérna í London sem átti að vera til Parísar en þegar kom að því að bóka þá voru bara engin tilboð til Parísar eins og við héldum að yrði og allt ógeðslega dýrt. Við Ingibjörg skoðuðum fullt af stöðum sem hefði verið gaman að fara til og við enduðum á að bóka ferð til Prag. Þannig ég og Þura yndislega vinkona mín erum að fara til Prag 4.mars til 7.mars. Stoppum stutt en fáum þó smá frí til þess að lifa aðeins lífinu, koma á nýjan stað og leika okkur smá. Ég hlakka rosalega til að eyða árinu með Þuru, búa í London með henni og fara með henni til Prag. Er hægt að hafa það betra eða? Nei veistu ég held ekki. Þetta ár er svo mikið árið okkar Þuru.

Ég og Þura í Coventry        Október 2009.



Andrea kveður með bros á vör að vanda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elska þig.

kv mamma.

mamma (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 17:50

2 identicon

Haha það er nú meira vælið í þessum Bretum!

Erla Björt (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 18:35

3 identicon

Hææ skvísa :)

haha það er svo fyndið hvað bretar eru að missa sig yfir snjó!! og þetta er svo lítill snjór að ég fór bara að hlæja þegar Paula, konan sem ég er hjá sagði að hún væri orðin stressuð að þurfa að labba á lestarstöðina afþví hún getur auðvitað ekki keyrt í snjó.. voðalega spes!

En gaman að lesa bloggið þitt! ætla að reyna að kíkja til London á laugardag eða sunnudag svo ég verð í bandi við þig hvernig það fer :) er ekki enn komin með enskt númer en nota bara íslenska sem er 616-2620.. þarft örugglega að gera +354 á undan :)

heyrumst :)

Sonja Björg (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 23:00

4 identicon

Hahaha þessir bretar! Æi ameríkanarnir eru líklega alveg jafn slæmir, ég sé það í kvöld þegar ég fer út aftur! Haha!

Þið eruð meiri skutlurnar að ætla til Prag! Það verður æði!

Hafðu það gott!

Knús,

Eva.

Eva Þórey (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 12:14

5 identicon

Alltaf gaman að lesa blogg frá þér - kveðja frá okkur í Hafnarfirði - hér er farið að telja niður í afmæli .....:)

Ella frænkfa (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 23:22

6 identicon

Guð! Fáránlegu Bretar:D Það var nú rigning hérna í Austin í 2 daga og þeim fannst það hræðilegt! Það var heitt sko en bara rigning... engin London rigning sko, bara venjuleg rigning;) og allir með regnhlíf og læti hahaha.. pöntuðum þvottavél á föstudaginn og hún kom ekki ÚTAF VEÐRI HAHAHAHA.. fáránlegt ;) Djösss aumingar þessir útlendingar ;)

hafðu það gott elskan :)

Gerður Rún Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 18.1.2010 kl. 05:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband